2008 - 2009

Destiny 4. besti hundur sýningar!!!

Á alþjóðlegu sýningu Hundaræktarfélags Íslands helgina 28-29.8.20010 varð Destiny (ISCh Break-Dance-N di San Gimignano) besti hundur tegundar með alþjóðlegt meistarastig, ekki nó með það heldur gerði hún sér lítið fyrir og sigraði tegundahóp 9 aðra sýninguna í röð!!! Hún var ekki búin því hún keppti svo um besta hund sýningar og varð þar í 4. sæti! Dómari Brenda Banbury frá Bretlandi

ISCH Perluskins Casper Dínó, að hann varð besti hundur tegundar með sitt síðasta Alþjóðlega meistarastig og mun því bera titilinn Alþjóðlegur meistari!!



Destiny sigrar grúppu 9!!
Júní sýning Hundaræktarfélags Íslands var haldin helgina 5.-6. Júní 2010. Alls voru skráðir til þátttöku tæplega 750 hundar af 80 tegundum. Chaplin, Destiny, Dínó, Noelle og Salka tóku þátt.

Já hver man ekki eftir því þegar Dínó; ISCH Perluskins Casper Dínó, gerði sér lítið fyrir og sigraði í tegundarhóp 9 og hafnaði í fjórða sæti í Besti Hundur Sýningar; BIS. Ég sagðist hæglega geta vanist því og vitir menn... Destiny; Break-Dance-N di San Gimignano, sigraði í tegundarhóp 9 nú um helgina en 20 tegundir áttu fulltrúa í grúppunni.! Það var ólýsanlegt þegar litla orustuþotan kom inn í hringinn að heyra í áhorfendum, stuðningurinn var ómetnalegur! Takk enn og aftur fyrir okkur. Destiny varð jafnframt íslenskur sýningmeistari um helgina. Dómari var hinn sænski Torbjörn Skar sem dæmdi púðlurnar og tegundarhóp 9.

Það er að frétta af honum Dínó; ISCH Perluskins Casper Dínó, að hann varð besti hundur tegundar; BOB, og tók þátt í tegundarhópnum fyrir hönd snögghærðu chihuahua hundana.

Chaplin, Conan Catchas Million Dollar Baby, varð þriðji besti rakkinn með meistaraefni í opnum flokk.

Salka, Eyðimerkur Jane Seymour, fékk excellent og varð önnur besta tíkin í ungliðaflokk.
Paul Stanton frá Svíþjóð dæmdi chihuahua.

Hvað er þetta, ég er allsæll eins og alltaf...?! ;-)

Þess má geta að Destiny og Chaplin fóru í augnskoðun og eru bæði stálslegin... CLEAR!

Tófa BIS !
ISCH Heimsenda Tóvuspor, varð hvorki meira né minna en besti hundur sýningar á opinni sýningu fjár- og hjarðhundadeildar HRFÍ. Dómari var Guðrún Guðjónsen!




Noelle!
Langhundurinn Noelle er nýjasta viðbótin í fjölskylduna! Velkomion Noelle




Sýningarúrslit!!!
Það sem af er árinu hafa verið haldnar tvær sýningar, önnur af Hundaræktarfélagi Íslands;Alþjóðleg meistarastigssýning, dagana 27.-28.febrúar 2010 og svo meistarastigssýning í tilefni af 5 ára afmæli Chihuahuadeildar HRFÍ.

Chaplin, Destiny, Dínó og Noelle mættu til leiks á alþjóðameistarastigssýningu HRFÍ í febrúar. Dómari var Ferelith Somerfield; Bretland.
Chaplin; Conan Catchas Million Dollar Baby, varð BOB/besti hundur tegundar í síðhærðum og fékk sitt fyrsta íslenksa meistarastig og alþjóðlegt meistarastig/cacib.

Destiny; Break-Dance Di San Gimignano, varð BOS/besti hundur af gangstæðu kyni og fékk sitt annað alþjóðlega meistarastig/cacib.

Dínó; ISCH Perluskins Casper Dínó, varð annar besti rakkinn.

Noelle, nýstirnið í fjölskyldunni, keppti í eldri hvolpaflokk og fékk heiðursverðlaun og varð annar besti hvolpur tegundar.

Þess má geta að Tóva; ISCH Heimsenda Tóvuspor, varð hlutskörpust í meistaraflokk tíka og önnur besta tíkin með alþjóðlegt meistarastig/cacib.

Ég er svo sannarlega ánægður með árangur þessarar sýningar!


Afmælisýning Chihuahuadeildar HRFÍ var haldin 6.mars 2010 og var dómari Arne Foss; Noregur.

Salka; Eyðimerkur Jane Seymore var besti hvolpur í hvolpaflokk 6-9mánaða.

Catcha; Chipau Catcha fékk very good og þriðja besta tík í ungliðaflokk.

Conan; Chipau Conan, fékk good.

Frímann; Misty Meadows Fireman, fékk very good .

Dínó; ISCH Perluskins Casper Dínó, varð BOB/ besti hundur tegundar.

Chaplin; Conan Catchas Million Dollar Baby, varð BOB/ besti hundur tegundar og fékk íslenskt meistarastig.

Búri; Conan Catchas Búri Klúri Svavarsson, fékk excellent en komst ekki í sæti.

Urður; Conan Catchas Pop Up The World, fékk very good og varð þriðja besta tíkin í opnum flokk.

Frida; Conan Catchas Frida Kahlo, fékk very good og varð fjóðra besta tíkin í opnum flokk.

Sída, Conan Catchas You Look Like a Million fékk good.

Þannig að bestu hundar sýningarinnar voru Dínó og Chaplin, ekki slæmt...og ég alsæll....!!!!!!

Meðfylgjandi eru myndir frá Afmælissýningu Chihuahuadeildarinnar; eiganda mynda er Anja Björg.










Stigahæsti snögghærði chihuahuahundurinn 2009!!!
Annað árið í röð er stigahæsti snögghærði chihuahuahundurinn ISCH Perluskins Casper Dínó! Hann hefur átt góðu gengi að fagna á árinu, hefur verið besti hundur tegundar á öllum sýningum félagsins nema einni.  Herbergið þeirra er að fyllast af bikurum, en Dínó er með alla farandbikara deildarinnar fyrir snögghærðan chihuahua...!

Við erum mjög ánægðir með hann, til hamingju Dínó minn... ;)




 

© Conan Catchas-ræktun. Allur réttur áskilinn.

Daníel Örn Hinriksson

Vefsíða: Anja Björg Kristnsdóttir.